00:00 - 00:03 | Jæja, þá er loksins komið á hreint með flutningana úr H97 |
00:04 - 00:05 | Fjármálasviðið fer aftur á sinn gamla stað |
00:05 - 00:07 | í E-húsi |
00:08 - 00:12 | það þarf hvort sem er enginn að tala neitt við þau |
00:12 - 00:15 | og ég fórna mér og fer í O-húsið |
00:17 - 00:19 | En ég? |
00:19 - 00:21 | Hvar á ÉG að vera? |
00:24 - 00:26 | Sko Kjartan sko, umm... |
00:27 - 00:28 | þú, sko, umm... |
00:31 - 00:33 | Þú færð skrifstofu á B-gangi |
00:34 - 00:36 | örugglega bara mjög næs skrifstofu sko |
00:53 - 00:58 | OK, þessir verða eftir, Díanna, Kristín Guðmunds, Heiða og Birna |
01:13 - 01:15 | Hvaða andskotans fokkings rugl er þetta! |
01:15 - 01:17 | Setja mann eins og mig á B-gang! |
01:18 - 01:23 | Það er út í hött að láta sér detta þetta í hug! |
01:25 - 01:28 | Vita þau ekki að ég er akademískur starfsmaður? |
01:29 - 01:31 | Maður eins og ég á betra skilið! |
01:31 - 01:34 | Það er ekki lengra síðan en á síðasta ári |
01:34 - 01:37 | að ég birti grein í bara mjög virtu alþjóðlegu tímariti |
01:37 - 01:40 | international journal of contemporary online sciences |
01:40 - 01:42 | Með fullri virðingu, ég held að enginn hafi heyrt... |
01:42 - 01:46 | Meðalgreindur fáviti eins og þú veist náttúrulega ekkert í þinn haus |
01:46 - 01:48 | sko ég hef alveg... |
01:48 - 01:52 | Já ætli þú hafir ekki bara setið í helvíst matsnefndinni |
01:53 - 01:54 | gaf fokkings fimm stig fyrir greinina |
01:56 - 01:57 | Það er alltaf sama sagan |
01:57 - 02:00 | og ekkert sem maður gerir er metið að verðleikum, |
02:00 - 02:03 | alveg sama þó það ætti skilið nóbelsverðlaun |
02:04 - 02:08 | Maður rembist við að reyna að gera hér eitthvað af viti |
02:08 - 02:13 | og ekki stundarfriður fyrir nemendum eða starfsmannafundum |
02:14 - 02:16 | og svo þegar maður fær loksins skrifstofu þar sem enginn finnur mann |
02:17 - 02:21 | þá þarf maður að flytja á fokkings B-gang |
02:27 - 02:29 | Þetta er alveg með ólíkindum |
02:30 - 02:34 | að akademískur starfsmaður eins og ég |
02:34 - 02:36 | þurfi að þola svona auðmýkingu |
02:41 - 02:42 | Þetta er allt yfirstjórninni að kenna |
02:43 - 02:47 | sem situr á svikráðum við heiðarlegt fólk eins og mig |
02:48 - 02:53 | Ég mun krefjast fundar með rektor |
02:54 - 02:56 | og menntamálaráðherra |
02:56 - 02:59 | Þetta mun hafa afleiðingar ég lofa ykkur því |
03:00 - 03:02 | þetta mun hafa fokkings afleiðingar! |
03:04 - 03:07 | Engar áhyggjur við fáum Hólmar til að tala við hann |
03:14 - 03:16 | Ég hefði aldrei átt að hætta í rafvirkjuninni |
03:19 - 03:23 | Algert rugl að hafa hlustað á námsráðgjafann sem plataði mig í félagsfræðina |
03:25 - 03:26 | En ég mun ekki gefast upp |
03:31 - 03:33 | Ég er búinn að flytja tíu sinnum frá því að ég byrjaði hér |
03:40 - 03:46 | og þetta verður sko ekki í síðasta skipti sem ég geri það |
03:46 - 03:49 | Frekar drepst ég í skurði |
03:53 - 03:56 | Bíðiði bara... |