00:00 - 00:03 | Lyfjafræðinemendurnir hafa sent inn kæru |
00:04 - 00:05 | Annað árið í röð! |
00:05 - 00:07 | Tölvupóstar hér, hér og héðan |
00:08 - 00:12 | Við vitum ekki alveg hvaðan á okkur stendur veðrið, |
00:12 - 00:15 | Erum við bara með óhæfa kennara? |
00:17 - 00:19 | Segðu mér aftur frá þessu, lybbar? |
00:19 - 00:21 | Voru lybbarnir aftur að kæra okkur? |
00:24 - 00:26 | Já, Oddur minn, |
00:27 - 00:28 | Lybbar |
00:31 - 00:33 | Lybbarnir voru að kæra |
00:34 - 00:36 | Þeim þótti víst ekkert annað í stöðunni |
00:53 - 00:58 | Allir út nema Sigga Súman, Hermann og Frímann |
01:13 - 01:15 | Þetta átti ekki að vera neitt vandamál! |
01:15 - 01:17 | Þau áttu bara að falla, öll, eins og spýtukarlar |
01:18 - 01:23 | Og þið leyfið þeim að komast upp með að kæra? |
01:25 - 01:28 | Trúnaðarbrestur! |
01:29 - 01:31 | Trúnaðarbrestur segi ég! |
01:31 - 01:34 | Það er óvarlegt hjá þeim að ætla að um ágreining sé að ræða |
01:34 - 01:37 | Þetta eru alvarlegar ásakanir |
01:37 - 01:40 | Alvarlegar segi ég! |
01:40 - 01:42 | En Oddur minn, þær eiga alveg rétt á sér, að einhve... |
01:42 - 01:46 | Mér er sama um hvað á rétt á sér! |
01:46 - 01:48 | Það hlýtur að vera eitthvað að námsmatinu |
01:48 - 01:52 | Mér er sama! Alvarlegar ásakanir! |
01:53 - 01:54 | Nú skrifa ég stóran tölvupóst! |
01:56 - 01:57 | Hef hann dónalegan í þokkabót! |
01:57 - 02:00 | Læt þau efast um allt sitt! |
02:00 - 02:03 | Efast um námslánin! |
02:04 - 02:08 | Efast um skólagöngu sína! |
02:08 - 02:13 | Ég læt þau ekki komast upp með þetta, |
02:14 - 02:16 | Ég hata lybba! |
02:17 - 02:21 | Nú er valdið tekið frá okkur! |
02:27 - 02:29 | Nú er bara einhver kærunefnd sem tekur málið fyrir |
02:30 - 02:34 | Hún gæti verið sanngjörn! |
02:34 - 02:36 | Hvað gerum við þá? |
02:41 - 02:42 | Sanngjörn? |
02:43 - 02:47 | Sanngjörn, segi ég! |
02:48 - 02:53 | Hvernig eigum við þá að fokka í nemendunum okkar? |
02:54 - 02:56 | Hvað eru 85% undirskriftir? |
02:56 - 02:59 | Ekki neitt! 85% hálfvitar! |
03:00 - 03:02 | Og hvað ef þetta kemst í gegn? |
03:04 - 03:07 | Þetta verður allt í lagi, það fellur enginn |
03:14 - 03:16 | Kannski fer rektor í málið, |
03:19 - 03:23 | Kannski verður okkur bannað að semja próf í framtíðinni |
03:25 - 03:26 | Ég veit ekki hvað ég á að gera |
03:31 - 03:33 | Kannski ná þau bara öll. |
03:40 - 03:46 | Það væri nú ömurlegt, |
03:46 - 03:49 | Ömurlegt, segi ég, með öllu. |
03:53 - 03:56 | Ég sendi bara ljótan tölvupóst. |