00:00 - 00:03 | Við erum búnir að skipuleggja sumarbústaðaferð á föstudaginn |
00:04 - 00:05 | við keyrum falinn bakveg |
00:05 - 00:07 | og kaupum kjöt og grillkol hér |
00:08 - 00:12 | við opnum snakkið og kveikjum upp í grillinu |
00:12 - 00:15 | göngum frá dótinu og hitum pottin upp klukkan 8 |
00:17 - 00:19 | og engin veit af þessu |
00:19 - 00:21 | og allt verður í lagi þá |
00:24 - 00:26 | Því miður |
00:27 - 00:28 | Soffía |
00:31 - 00:33 | Soffía er búinn að frétta af þessu og er á leiðinni |
00:34 - 00:36 | koma ættingjanna er óhjákvæmileg |
00:53 - 00:58 | ég var bara búinn að bjóða, Karen, Jónsa, Hransa og Gauta |
01:13 - 01:15 | þetta átti að vera leyndó |
01:15 - 01:17 | helvítis fokking leyndó |
01:18 - 01:23 | nú koma allir og éta af grillinu |
01:25 - 01:28 | og klára allt |
01:29 - 01:31 | þetta átti að vera róleg helgi í sveitinni |
01:31 - 01:34 | nú er ekkert pláss í pottinum |
01:34 - 01:37 | ég var búinn að hlakka til alla vikuna |
01:37 - 01:40 | þetta er alltaf svona þegar maður ætlar að gera sér glaðan dag |
01:40 - 01:42 | Því miður getum við ekki hætt við núna |
01:42 - 01:46 | þetta er alltaf helvíts fokking sama saga |
01:46 - 01:48 | því miður en við erum búnir að gera salatið |
01:48 - 01:52 | þetta er allt saman til einskis |
01:53 - 01:54 | ég er hættur við að fara |
01:56 - 01:57 | þið getið tekið ykkur saman í rassgatinu |
01:57 - 02:00 | og farið sjálfir þarna upp eftir |
02:00 - 02:03 | ég verð hérna og fer ekki fokkings fet |
02:04 - 02:08 | ég húki hér alla helgina í helvítis borginni |
02:08 - 02:13 | í súldar skít og rigningar óþverra |
02:14 - 02:16 | mig sem langaði svo að fara |
02:17 - 02:21 | mig hlakkaði svo til að prófa nýja sólstólin |
02:27 - 02:29 | ef það er eitt sem ég hef lært af þessu |
02:30 - 02:34 | þá hef ég lært þetta: |
02:34 - 02:36 | aldrei að láta sig hlakka til |
02:41 - 02:42 | fríið er búið |
02:43 - 02:47 | þetta var síðasti séns að njóta þess |
02:48 - 02:53 | og nú er hann horfinn og fríið búið |
02:54 - 02:56 | það verður ekki ekki aftur fyrr en á næsta ári |
02:56 - 02:59 | og þá kannski fær maður frið fyrir sjálfan sig |
03:00 - 03:02 | frið fyrir fólki af eigin holdi og blóði |
03:04 - 03:07 | ekki gráta, okkur er samt boðið |
03:14 - 03:16 | ég vil fá vindsængina mína aftur |
03:19 - 03:23 | ég blæs hana bara upp á stofugólfinu |
03:25 - 03:26 | aleinn |
03:31 - 03:33 | þið getið farið |
03:40 - 03:46 | ég verð hérna og ímynda mér berjatínslu og sólsetur |
03:46 - 03:49 | og annað sem hefði getað verið |
03:53 - 03:56 | geriði það sem þið viljið |